Innlent

Ólafur hefði neitað EES-samningnum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar því að Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti landsins, telji málskotsréttinn svo virkan að hún hefði talið rétt að vísa Kárahnjúkamálinu til þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann segir að ummæli Vigdísar styrki ákvörðun hans um að skrifa ekki undir fjölmiðlalögin. Þetta sagði Ólafur Ragnar í samtali við fréttamann Stöðvar 2 og Bylgjunnar á Bessastöðum í gær. „Ég tók því fagnandi að hún skyldi telja málskotsréttinn svo virkan að ef hún hefði verið í sporum forsetans hefði hún vísað Kárahnjúkamálinu til þjóðarinnar. Það er töluvert annað en hún sagði þegar hún ákvað að vísa EES-samningnum ekki til þjóðarinnar,“ segir forseti. „Ég tel þessa tilkynningu hennar því til styrktar ákvörðun minni.“   Aðspurður hvort persónuleg skoðun forsetans skipi eitthvað hlutverk í ákvörðun hans um að skjóta lögum í þjóðaratkvæðagreiðslu, segir Ólafur Ragnar að forseti þurfi ekki að hafa skoðun, með eða á móti, viðkomandi lögum. „Það getur verið nóg, eins og var í mínu tilviki, að forseti telji að þjóðin skuli vera sá dómari sem stjórnarskráin gerir ráð fyrir að hún sé í afmörkuðum málum.“ Ólafur segir að æskilegt sé hins vegar að þingið, ríkisstjórnin og allir sem eigi aðild að málum vandi, svo vel vinnubrögð að þessi staða komi ekki upp. Tæp vika er í forsetakosningar og hefur Ólafur Ragnar verið í viðtali við helstu fjölmiðla landsins undanfarna daga, nú síðast hjá Arnþrúði Karlsdóttur á Bylgjunni í morgun. Þar kom vel í ljós hve ósammála hann og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, eru um hvers konar mál forseti eigi að synja staðfestingar. Hún telur að lög um Kárahnjúkavirkjun séu dæmi um lög sem forsetinn eigi að synja staðfestingar. Ólafur Ragnar mat það hins vegar ekki svo. Hún staðfesti lögin um evrópska efnahagssvæðið en Ólafur Ragnar telur að þar hefði hún átt að neita að skrifa undir. Í samtalinu við Arnþrúði Karlsdóttur sagði hann að það varðaði ekki hvort menn væru með eða á móti samningnum, heldur að í samningnum fólust ákvæði sem snertu fullveldisrétt þjóðarinnar.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×