Innlent

Framkvæmdastjóri NATO býður aðstoð

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins er reiðubúinn að aðstoða Íslendinga og Bandaríkjamenn við endurskoðun á hlutverki bandaríska hersins á Íslandi. Hann segir þó að málið sé fyrst og fremst í höndum þjóðanna tveggja. Jaap De Hoop Scheffer er í sinni fyrstu heimsókn á Íslandi sem framkvæmdastjóri NATO en hefur raunar komið tvisvar til landsins áður í öðrum tilgangi. Á fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra ræddi Scheffer hlutverk bandalagsins, sem hefur tekið verulegum breytingum á undanförnum árum. Hinn nýi framkvæmdastjóri ræddi einnig breytingar sem bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur boðað á veru bandaríska flughersins hér á landi, en sem kunnugt er hafa slíkar hugmyndir fallið í grýttan jarðveg hjá íslenskum stjórnvöldum. Scheffer segist reiðubúinn að aðstoða íslensk og bandarísk stjórnvöld, verði þess óskað. Scheffer vonast til að íslensk og bandarísk stjórnvöld nái samkomulagi, án aðstoðar NATO, enda sé þarna um tvíhliða samning þjóðanna að ræða frá 1951 og því ekki málefni bandalagsins. Hann ítrekar þó að hann sé reiðubúinn að leggja málinu lið, telji þjóðirnar að hann geti orðið að liði sem einhvers konar sáttasemjari, líkt og forveri hans George Robinson gerði á sínum tíma. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um hvort eða hvernig framkvæmdastjóri Nato tekur þátt í viðræðum Íslendinga við Bandaríkjamenn. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði við sama tilefni, að málið væri enn í skoðun en engir formlegir fundir verið boðaðir til að finna lausn í deilunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×