Innlent

Fyrstur Íslendinga upp norðurhlið Everest

Everest í bakgrunni
Everest í bakgrunni

„Mér finnst frábært að Leifur sé að prófa þessa leið. Ástæður þess að ég valdi suðausturleiðina á sínum tíma eru þær að ég hef alltaf haft áhuga á menningu Nepals, á sjerpum, og svo fannst mér sú leið hreinlega meira heillandi. Norðurhliðin er meiri háslétta, flatari og hrjóstrug. Á suðausturleiðinni eru djúpir dalir og meira ísklifur, en þar er ég á heimavelli,“ segir Haraldur Örn Ólafsson, en í dag eru ellefu ár liðin síðan hann stóð á tindi hæsta fjalls heims, Everest.

Hann bætir við að suðausturleiðin sé þess eðlis að auðveldara sé að fá aðstoð, komi eitthvað upp á. Þeir Íslendingar sem hafa hingað til klifið Everest hafa allir farið suðausturleiðina frá Nepal, þá leið sem Ingólfur Gissurarson kemur til með að klífa. Norðurhliðin er almennt fáfarnari, en þá er farið frá Tíbet. Kínverskur leiðangur náði fyrst á toppinn eftir norðurhliðinni árið 1960 en síðan var leiðin lokuð fram til 1980. Leifur Örn Svavarsson stefnir á að verða fyrstur Íslendinga til að klífa norðurhliðina. Leifur stefnir á að komast á toppinn á bilinu 19. til 29. maí. Hann hefur klárað aðlögunarferlið og bíður eftir veðurglugga til að takast á við toppinn. Nú hvílir hann sig og gefur líkamanum tækifæri til að jafna sig fyrir lokahnykk ferðarinnar – að komast á toppinn. Ingólfur sagði í samtali við Í bítið á Bylgjunni að hann hefði klárað aðlögunarferlið fyrir viku. Þá voru farnar tvær ferðir upp í fjallið og yfir ísfallið, skriðjökul og hæsta dal í heimi. Áætlað er að hann komist á toppinn eftir rúma viku, 21. eða 22. maí. Hann var í gær staddur í grunnbúðunum, sem eru í 5.400 metra hæð.

Aðspurður sagðist Ingólfur ætla að reyna að staldra við á toppnum í um það bil hálftíma, þó að það færi eftir umferð, sem getur orðið töluverð á toppinn. Nú eru um 250 fjallagarpar frá öllum heimshornum skráðir í göngu eftir suðausturleiðinni. Talsvert færri eru skráðir í göngu upp norðurhliðinni. Fjallið Everest er 8.848 metra hátt yfir sjávarmáli og er nyrsti tindur í Himalajafjöllunum, á landamærum Nepal og Tíbet. Norðurhliðin og suðausturleiðin eru helstu leiðirnar upp á fjallið þótt vitað sé til þess að menn hafi farið aðrar leiðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×