Innlent

Fyrstu frambjóðendurnir hafa skilað undirskriftalistum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Guðrún og Sigurbjörn skila listunum í ráðhúsinu.
Guðrún og Sigurbjörn skila listunum í ráðhúsinu. vísir/vilhelm
Að minnsta kosti sjö frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa skilað inn listum yfir meðmælendur í ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Guðrún Margrét Pálsdóttir mætti á öðrum tímanum í ráðhús Reykjavíkur og skilaði inn sínum lista. Um svipað leiti mætti Sigurbjörn Magnússon, hæstaréttarlögmaður, fyrir hönd framboðs Davíðs Oddssonar og skilaði listum fyrir hann. Davíð mætti ekki sjálfur niður í ráðhús.

Sturla Jónsson, Elísabet Jökulsdóttir og Ástþór Magnússon mættu sjálf niður í ráðhús með sínar undirskriftir með sér. Andri Snær Magnason hefur einnig skilað af sér en sonur hans mætti með undirskriftirnar fyrir hans hönd.

Guðni Th. Jóhannesson, sá frambjóðandi sem hefur mælst með mest fylgi í könnunum að undanförnu, var fyrstur manna til að skila inn undirskriftalistum. Myndband af því þegar fulltrúar framboðs hans afhentu listana má sjá neðst í fréttinni.

„Framboðsfresturinn rennur út á föstudag en það þarf að skila inn meðmælalistum áður svo hægt sé að fara yfir þá af hálfu yfirkjörstjórnar. Kjörstjórn fer síðan yfir listana og kannar hvort þeir séu í lagi og gefur út vottorð þess efnis. Við afhendum vottorðin á fimmtudag klukkan eitt“ segir Kristján Jóhannsson, formaður yfirkjörstjórnar í norðvesturkjördæmi, í samtali við Vísi. Hann var ásamt öðrum kjörstjórnarmönnum í Héraðsdómi Vesturlands í dag en alls mættu fulltrúar tíu framboða þangað. 

Í úttekt Fréttablaðsins sem birtist í morgun kom fram að líkur væru á að fimm frambjóðendur yrðu tæpir á því að ná að fylla þann kvóta sem þarf til að geta boðið fram. Það eru Baldur Ágústsson, Benedikt Kristján Mewes, Magnús Ingiberg Jónsson og Magnús Ingi Kristjánsson.

Sonur Andra Snæs Magnasonar afhenti undirskriftirnar fyrir hönd föður síns.mynd/stöð 2
Ástþór Magnússon mætti í ráðhúsið klyfjaður undirskriftum. Hann hefur meiri reynslu en flestir á þessu sviði.mynd/stöð 2
Elísabet Jökulsdóttir og Sturla Jónsson í ráðhúsinu í dag.mynd/stöð 2

Tengdar fréttir

Frambjóðendur gætu helst úr lestinni

Níu af fjórtán frambjóðendum til forseta segjast hafa safnað nægilega mörgum undirskriftum meðmælenda til að komast í framboð. Einn hefur safnað hundrað undirskriftum og verður því ekki með í baráttunni en að lágmarki þarf undirskr




Fleiri fréttir

Sjá meira


×