Skoðun

Fyrirtæki í vexti á Íslandi – eða annars staðar

Páll Harðarson skrifar
Gróska er mikil í nýsköpun. Framsæknir einstaklingar fara fram á völlinn með hugmyndir, studdir af hinum ýmsu samtökum, verkefnum og sjóðum sem styðja við nýsköpun og smá fyrirtæki.

Fólk sem lætur hugmyndir verða að fyrirtækjum. Þetta er grunnur að blómstrandi efnahagslífi þar sem menntuðu fólki er gefið tækifæri til að nýta þekkingu sína á hagnýtan hátt. Sum þessara fyrirtækja ná ekki að vaxa úr grasi en önnur dafna eins og gengur. Sprotastarfið og starf stuðningsaðila, eins og Tækniþróunarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs, hefur verið nægilega öflugt til að koma mörgum fyrirtækjum á laggirnar. En síðan er eins og það myndist tómarúm þegar kemur að því að fjármagna næstu skref, að vaxa og verða fullorðin.

Þetta plagar mörg góð fyrirtæki sem eru mikils megnug, fyrirtæki sem veita í heildina mörgum atvinnu, eru í rannsóknum og þróun og viðhalda þekkingu í verki og tækni.

Eitt framfaraskrefVonir standa til að Alþingi muni taka fyrir frumvarp um breytingar á lífeyrissjóðalögum á haustmánuðum. Stuðningur við frumvarpið er víðtækur. Ef það yrði að lögum gætu félög öðlast betra aðgengi að fjármagni fagfjárfesta í gegnum First North-markaðinn.

Það yrði mikið framfaraskref og tækifæri fyrir smá og meðalstór fyrirtæki til að hugsa lengra og stærra. En stærra en hvað? Sjáum við fleiri Marel og Össur?

Heimilisfang: erlendisStaðan er snúin fyrir mörg nýsköpunarfyrirtæki hér á landi. Hér hafa þau slitið barnsskónum en þau leita æ meira út fyrir landsteinana í vaxtarfasanum.

Það er jákvætt að byggð séu tengsl við erlenda fjárfesta og að þeir sýni þessum fyrirtækjum áhuga. En fjármögnunarumhverfið hérlendis má ekki verða til þess að við missum af tækifærum til að taka þátt í vexti þeirra.

Viljum við að þessi fyrirtæki verði áfram hér, efnahagslífi og þekkingu á meðal okkar til góða, eða viljum við að fyrirtækin skapi auð annars staðar?

VítahringurHættan er tvenns konar. Annars vegar að þessi fyrirtæki skjóti ekki rótum hér þar sem íslenskur fjármálamarkaður fær ekki tækifæri til að styðja við þau, þeim og fjárfestum til hagsbóta.

Hins vegar að þau geti ekki nýtt fjármagn sem þau myndu afla hér á landi á markaði til vaxtar utan landsteina vegna gjaldeyrishafta. Þetta hefur leitt til þess að fyrirtæki hafa hætt við að skrá sig á verðbréfamarkað og huga jafnvel að flutningi til annarra landa. Þetta er vítahringur.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×