Tíska og hönnun

Fyrirsætur á barmi heimsfrægðar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Englar nærfatarisans Victoria’s Secret hafa margir hverjir náð alsheimsfrægð eftir að hafa spókað sig á tískupöllum merkisins. Ber þar helst að nefna Gisele, Heidi Klum, Tyru Banks og Miröndu Kerr.

Nú eru hins vegar nýir englar tilbúnir að taka við keflinu og sigra fyrirsætubransann, jafnt á tískupallinum sem utan hans.

Kasia Struss

26 ára

Hæð 1,79 m

Kasia er pólsk og var uppgötvuð 2005 þegar hún sendi myndir af sér til unglingatímarits. Hún hefur unnið fyrir merki á borð við Marc Jacobs og DKNY.

Jasmine Tookes

23 ára

Hæð 1,75 m

Jasmine sást fyrst í auglýsingaherferðum fyrir Ugg Boots og Gap árið 2010. Modles.com valdi hana eina af tíu bestu, nýju fyrirsætunum árið 2011.

Martha Hunt

25 ára

Hæð 1,78 m

Martha var uppgötvuð af ljósmyndara í Charlotte í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum og gekk fyrst tískupallana fyrir Issey Miyake á tískuvikunni í París árið 2007.

Toni Garrn

22 ára

Hæð 1,83 m

Þýska fyrirsætan var uppgötvuð þegar hún var þrettán ára og þreytti frumraun sína á tískupöllunum tveimur árum síðar fyrir Calvin Klein. Hún hefur verið mikið á milli tannanna á fólki eftir að hún byrjaði með leikaranum Leonardo DiCaprio í fyrra.

Lais Ribeiro

23 ára

Hæð 1,80 m

Brasilíska fyrirsætan byrjaði í bransanum árið 2009 og fékk stuttu seinna að ganga tískupallana fyrir stór merki, til dæmis Chanel, Louis Vuitton, Gucci, Dolce & Gabbana, Versace og Marc Jacobs.

Barbara Palvin

20 ára

Hæð 1,75 m

Ungverska fyrirsætan Barbara Palvin var uppgötvuð á götum Búdapest þegar hún var aðeins þrettán ára. Hún hefur gengið pallana fyrir hönnuði á borð við Louis Vuitton, Miu Miu og Vivienne Westwood.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×