Fótbolti

Fyrirliðinn er íslenska liðinu afar mikilvægur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Einar tekur út leikbann í dag.
Aron Einar tekur út leikbann í dag. vísir/vilhelm
Íslenska landsliðið verður án fyrirliða síns á móti Lettum í Laugardalnum í kvöld þegar liðið spilar síðasta heimaleik sinn í undankeppni EM 2016. Aron Einar Gunnarsson fékk rauða spjaldið í lok síðasta leik liðsins á móti Kasakstan og tekur út leikbann í dag.

Íslenska landsliðið hefur ekki tapað á heimavelli í undankeppni síðan í júní 2013 og í raun aðeins tapað tveimur alvöruleikjum síðan Lars Lagerbäck tók við liðinu. Báðir leikirnir eiga það sameiginlegt að liðið var án Arons Einars annað hvort allan eða stóran hluta leiksins.

Í tapinu á móti Slóvenum í Laugardalnum 7. júní fór Aron Einar af velli eftir að hafa farið úr axlarlið eftir 50 mínútna leik. Þá var staðan 2-2 en íslenska liðið tapaði síðustu 40 mínútum leiksins 2-0 og þar með leiknum 4-2.

Haustið áður hafði íslenska liðið spilað án Arons Einars á móti Sviss og þrátt fyrir góða frammistöðu þurfti liðið að sætta sig við 2-0 tap á móti verðandi öruggum sigurvegurum riðilsins.

„Það hafa allir séð að Aron hefur verið að spila vel í ­þessari undankeppni. Það væri alltaf best að geta valið úr öllum leikmannahópnum. Ég segi alltaf, ekki horfa á vandamálin heldur einblínið frekar á lausnirnar,“ sagði Lars Lagerbäck um fjarveru Arons á blaðamannafundi í gær.

„Ég vona það að við getum sýnt það á móti Lettlandi að við getum fundið góðan mann fyrir hann. Aron hefur samt spilað virkilega vel og hann kemur með mikilvægt jafnvægi inn í liðið. Menn þurfa að spila marga leiki með liðinu til að ná valdi á slíku ­hlutverki sem og að spila fyrir liðið og lesa leikinn vel. Þetta er því vissulega ekki auðveldasta staðan til að fylla,“ sagði Lagerbäck. Það er hægt að taka undir þau orð.

Ísland vann síðast keppnisleik án Arons Einars fyrir rúmum fjórum árum þegar liðið vann 1-0 sigur á Kýpur í Laugardalnum í byrjun september 2011. Líklegast er að Emil Hallfreðsson komi inn á miðjuna við hlið Gylfa Þórs Sigurðssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×