Skoðun

Fyrirgefning í stað hefndar

Elín Hirst skrifar
Óhugnanlegri atburðir eiga sér nú stað fyrir botni Miðjarðarhafs en orð fá lýst. Mörg hundruð óbreyttir borgarar hafa látist, flestir Palestínumenn, þar á meðal fjöldi saklausra barna. Kveikja átakanna er eins og oft áður hefnd. Í þetta sinn vegna morða á þremur ísraelskum ungmennum í júnímánuði.

Þessir atburðir hafa haft sterk áhrif á íslenska þjóðarsál. Flest erum við þannig af guði gerð að við viljum hjálpa og koma góðu til leiðar, en upplifum okkur eðlilega vanmáttug í harðvítugum milliríkjadeilum eins og þessari. Er það nokkuð skrýtið þegar John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mistekst að miðla málum og Bandaríkjamenn sem og önnur stórveldi standa ráðþrota vegna deilunnar.

Árið 2011 urðu Íslendingar fyrstir vestrænna ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Palestínuríkis. Þar kvað við nýjan tón á Vesturlöndum í stuðningi við þetta undirokaða ríki sem vert er að vera stoltur af. Íslensk stjórnvöld hafa einnig brugðist hart við þeim átökum sem nú geisa. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lýst þungum áhyggjum af átökunum og harmað að almennir borgarar, þar á meðal fjöldi barna, hafi látið lífið í árásum Ísraela á Gasa. Hann fordæmir allt ofbeldi og beitingu vopnavalds á svæðinu. Það sé skýlaus krafa að ísraelsk stjórnvöld stöðvi árásir sínar á Gasa sem hafa leitt til mikilla hörmunga fyrir almenna borgara. Að sama skapi verði árásum á Ísrael að linna þegar í stað.

Nýjustu fregnir eru að íslensk stjórnvöld ætli að verja tólf milljónum króna til neyðaraðstoðar á Gasa, en yfir 100 þúsund íbúa á svæðinu eru á vergangi og mikill skortur er á hjálpargögnum og hreinlætisaðstöðu. Þá hefur verið boðað til aukafundar í utanríkismálanefnd Alþingis og er það von mín að nefndin sendi frá sér harðorða yfirlýsingu vegna þessa máls á næstu dögum. Við það tækifæri ættu þingmenn að slá nýjan tón alveg eins og þegar Ísland varð fyrst vestrænna ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Palestínu með því að hvetja Ísraelsmenn og Palestínumenn til þess að fara leið Nelsons Mandela í Suður-Afríku; að skapa frið með fyrirgefningu í stað hefndar. Það er eina færa leiðin.

Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið til að mæta á Ingólfstorg í dag klukkan 17 til þess að sýna samstöðu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×