Skoðun

Fyrir fólkið í landinu

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Á undanförnum fjórum árum hefur íslenskt samfélag náð talsverðum bata eftir efnahagshrunið. Þessi tími hefur verið okkur öllum sem myndum samfélag hér á Íslandi erfiður. Stórbætt staða ríkissjóðs og íslensks efnahagslífs er árangur þess erfiðis. Þessi árangur hefur skapað forsendur fyrir því að nú er raunhæft að hefja sókn að bættum lífskjörum. Þar skiptir máli hvaða leið er farin.

Vinstri græn vilja að hér byggist upp samfélag jöfnuðar og velmegunar þar sem verðmætasköpun byggist á fjölbreyttu atvinnulífi. Samfélag þar sem stefnt er að velsæld til lengri tíma en ekki gripið til stórvaxinna skammtímalausna. Það er nefnilega eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda að búa Ísland undir áskoranir og tækifæri næstu áratuga. Það skiptir því miklu máli að horfa til langs tíma við allar aðgerðir og hafa þar í huga hagmuni komandi kynslóða ekki síður en okkar.

Vinstri grænna hafa skýr markmið. Aukinn jöfnuður og bætt aðgengi að góðri menntun og heilbrigðisþjónustu leika lykilhlutverk eins og sú hugsun að ganga ekki þannig á náttúruna að við skerðum lífsskilyrði komandi kynslóða. Mannauðurinn er lykill að framtíðinni ekki síður en auðlindir hafs og lands og hann verður hámarkaður með því að skapa samfélag jafnaðar og byggja hagvöxt á hugviti.

Vinstri græn hafa skýr markmið fyrir komandi kjörtímabil. Við höfum lagt fram áætlun í ríkisfjármálum fyrir næsta kjörtímabil sem gerir ráð fyrir að hægt verði að auka framlög til heilbrigðis-, mennta- og velferðarmála um 50-60 milljarða króna. Hún byggir á hagsspá Hagstofunnar, engum skatthækkunum og aukinni rentu af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Við ætlum að halda áfram að búa til þá grænu framtíð sem við höfum nú þegar unnið að á kjörtímabilinu. Þar skiptir miklu máli að stuðla að atvinnuuppbyggingu í sátt við umhverfið en skapa um leið aukin verðmæti. Þar munum við leggja sérstaka áherslu að bæta rekstrarskilyrði lítilla fyrirtækja og halda áfram uppbyggingu hinna skapandi greina, ferðaþjónustu, þekkingariðnaðar og nýsköpunar. Um leið er mikilvægt að efla grunnatvinnuvegina enda byggist nýsköpun ekki síst á því að auka verðmæti sjávarfangs og landbúnaðarafurða. Aukin verðmætasköpun mun skila betri kjörum fyrir fólkið í landinu sem er forgangsverkefni.

Við stöndum á tímamótum og valkostirnir eru skýrir. Við höfum tækifæri til þess að taka skrefið til fulls og halda áfram uppbyggingu velferðarsamfélags þar sem hagsmunir almennings eru í fyrirrúmi. Allar forsendur til þess hafa verið skapaðar á undanförnum árum. Við getum eflt heilbrigðiskerfið, bætt menntakerfið, bætt kjörin og byggt upp fjölbreytt atvinnulíf án þess að ganga náttúruna og tækifæri komandi kynslóða. Við getum bætt kjör almennings. Í þessum efnum eru Vinstri græn skýr valkostur fyrir fólkið í landinu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×