Skoðun

Frjáls verslun

Elín Hirst skrifar
Það var ekki fyrr en árið 1976 að mjólkurbúðir voru lagðar niður, en fram að þeim tíma var aðeins hægt að kaupa mjólk, rjóma og skyr í sérverslunum Mjólkursamsölunnar. Fram til ársins 1982 mátti enginn selja símtæki í landinu nema ríkisfyrirtækið Póstur og sími. Gleraugu fengust aðeins í sérverslunum og sömu sögu var að segja um bækur.

Það var hinn merki athafnamaður Pálmi í Hagkaup sem braut þá einokun á bak aftur með því að hefja sölu hvors tveggja í Hagkaupsverslunum sínum á lægra verði. Ég man líka eftir finnsku kartöflunum í Hagkaup sem urðu m.a. til þess að reglum um sölu á þessum matvælum var breytt til hagsbóta fyrir neytendur.

Einkennilegir verslunarhættir

Þegar maður hugsar til baka þá finnst manni þetta afar einkennilegir verslunarhættir, svo að ekki sé meira sagt og erfitt að skilja hvað mönnum gekk til. Ekki síst í í ljósi þess að eitt af grundvallarmálum í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga var einmitt að losna úr viðjum verslunareinokunar og leyfa frjálsa verslun.

Svo virðist sem við séum enn við sama heygarðshornið á mörgum sviðum verslunar árið 2014; föst í gamaldags viðhorfum. Hvers vegna eru til dæmis lyf sem eru ekki lyfseðilsskyld ekki seld í stórmörkuðum? Er einokun ríkisins á áfengissölu ef til vill tímakekkja? Hvernig stendur á því að flutt er inn erlent beikon og það selt sem íslenskt án þess að neytendur hafi hugmynd um það? Er ekki kominn tími til að íslensk stjórnvöld staldri við og líti yfir sviðið með hagsmuni neytenda að leiðarljósi? Eins og hin sögulegu dæmi sanna er ávallt hætta á að við verðum samdauna ríkjandi ástandi.

Mikilvægur málaflokkur

Það sem fær mig til að setja þessar hugleiðingar á blað eru fregnir um að bandaríska verslunarkeðjan Costco vilji inn á íslenskan markað og umræðan sem skapast hefur í kjölfarið. Alþingimenn eiga starf fyrir höndum á næsta þingi að skoða regluverk þessara mála ofan í kjölinn. Neytendamál eru afar mikilvægur málaflokkur og örugglega vanmetinn af ýmsum. Íslenskur almenningur á rétt á því framfarir verði á þessum sviðum sem og öðrum.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×