Bíó og sjónvarp

Frelsissviptingar umfjöllunarefni nýrrar kvikmyndar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Austur verður bönnuð innan 16 ára.
Austur verður bönnuð innan 16 ára. mynd/úr sýnishorninu
Austur, ný íslensk kvikmynd eftir Jón Atla Jónasson, verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum þann 17. apríl næstkomandi. Meðal helstu leikara myndarinnar má nefna Arnar Dan Kristjánsson, Björn Stefánsson, Hjört Jóhann Jónsson, Ólaf Darra Ólafsson og Vigfús Þormar Gunnarsson. 

Plakat myndarinnar
„Söguþráðurinn er rifinn út úr íslenskum samtíma,“ segir leikstjórinn og handritshöfundurinn Jón Atli. „Hún byggir á fregnum síðustu missera. Æ oftar höfum við heyrt af frelsissviptingarmálum sem tengjast undirheimum landsins. Myndin fjallar samt ekki um eitt sérstakt mál heldur sækir innblástur til málanna almennt.“

Myndataka myndarinnar var í höndum Aske Alexander Foss, Hákon Már Oddsson sá um klippingu og Baldvin Magnússon um hljóðið. Stefán Jörgen farðaði og sá um búninga og Urður Hákonardóttir samdi tónlistina.

Líkt og áður segir verður myndin frumsýnd 17. apríl.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×