Bíó og sjónvarp

Frank og Casper snúa aftur: Bráðfyndið sýnishorn úr Klovn Forever

Bjarki Ármannsson skrifar
Frank og Casper snúa báðir aftur í nýju myndinni.
Frank og Casper snúa báðir aftur í nýju myndinni.
Það styttist óðfluga í frumsýningu kvikmyndarinnar Klovn Forever, seinni myndarinnar um dönsku lúðana Frank Hvam og Casper Christensen, sem á að rata í bíó næsta september. Fyrri myndin um félagana, sem kom út árið 2010, naut mikilla vinsælda hér á landi sem og samnefndir sjónvarpsþættir.

Frank og Casper snúa báðir aftur í nýju myndinni ásamt Mia Lyhne í hlutverki Mia, eiginkonu Frank. Þá mun Mikkel Nørgaard setjast í leikstjórastólinn á ný. Lítið er vitað um söguþráð væntanlegu myndarinnar en bráðfyndið sýnishorn úr henni, sem best er að segja sem minnst um, má sjá hér að neðan.

Klovn Forever

Posted by Klovn on 16. maí 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×