Skoðun

Framtíð stefnumótunar og áætlanagerðar hins opinbera

Héðinn Unnsteinsson og Pétur Berg Matthíasson skrifar

Í vor mælti fjármála- og efnahagsráðherra fyrir frumvarpi til laga um opinber fjármál. Frumvarpið felur í sér heildarlöggjöf um fjármál ríkis og sveitarfélaga þar sem áhersla er lögð á langtímastefnumörkun opinberra fjármála, aukinn aga við framkvæmd fjárlaga og markviss tengsl almannafjár við stefnur og áætlanir. Mörg markverð nýmæli má finna í frumvarpinu sem munu hafa veruleg áhrif á fyrirkomulag ríkisrekstrarins ef það verður að lögum, en fjármála- og efnahagsráðherra mun leggja frumvarpið fram á ný á haustþingi.



Markvissari stefnumótun

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að verulegar breytingar verði gerðar á skipulagi og vinnulagi við stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Skilgreina á stefnu fyrir málefnasvið og málaflokka samhliða fækkun fjárlagaliða. Hver ráðherra á síðan að setja fram stefnu fyrir þau málefnasvið og málaflokka sem hann ber ábyrgð á til eigi skemmri tíma en fimm ára. Málefnasviðsstefnur munu í raun leiða hvert svið og áætlanir málaflokka. Gera má ráð fyrir að fjöldi málefnasviða í fjárlagafrumvarpi telji um þrjá tugi og að fjöldi málaflokka verði um fimm til sjö að meðaltali á hvert málefnasvið. Með markvissri fækkun fjárlagaliða og tilkomu málefnasviðsstefna tekst m.a. að skapa skýrari grundvöll fyrir tengingu á milli stefnumótunar og úthlutunar fjárveitinga.



Í frumvarpinu er því gert ráð fyrir vandaðri stefnumótun fyrir málefnasvið og málaflokka sem hlutaðeigandi fagráðherra ber ábyrgð á. Í stefnu fyrir málefnasvið og málaflokka skal meðal annars greint frá gæða- og þjónustumarkmiðum og hvernig markmiðum verði náð með tilliti til fjármuna. Forsenda stefnumótunar fyrir málefnasvið er ríkt samstarf ráðuneyta og ríkisstofnana, en þær eiga m.a. að móta stefnu á hverju ári fyrir starfsemi sína til næstu þriggja ára. Þar skal m.a. greint frá markmiðum og almennum áherslum og hvernig áætlaðar fjárveitingar til stofnana samræmast annars vegar markmiðum í rekstri hlutaðeigandi stofnunar og hins vegar þeim gæða- og þjónustumarkmiðum sem fram koma í málefnasviðsstefnu.



Auka stefnumótunarþekkingu

Árið 2012 var gerð greining á helstu stefnum og áætlunum ríkisins. Eitt af því sem kom fram í þeirri greiningu var að stefnur og áætlanir þurfa að vera fjármagnaðar svo að þær verði framkvæmdar og nái markmiðum sínum. Með frumvarpi um opinber fjármál er stigið stórt skref í þá átt. Greiningin leiddi einnig í ljós að stefnur og áætlanir ríkisins segja til um hvað þær ætla að gera en leiða í fæstum tilfellum til framkvæmda. Þá reyndist samhæfingu þeirra vera ábótavant, þær eru of margar, framkvæmda- og ábyrgðaraðilar aðgerða eru ekki ávallt skilgreindir auk þess sem sjaldan voru settir fram hlutlægir árangursmælikvarðar.



Í skýrslu forsætisráðuneytisins, Samhent stjórnsýsla (2010), kemur m.a. fram að styrkja þurfi getu og hæfni ráðuneyta til stefnumótunar og tryggja nauðsynlega sérþekkingu. Ef frumvarp um opinber fjármál verður að lögum er líklegt að álag vegna undirbúnings stefnumótunar verði umtalsvert. Brýnt verður að auka þekkingu og færni innan stjórnsýslunnar á stefnumótun og áætlanagerð til lengri tíma með áherslu á faglega framsetningu markmiða, víðtækt samráð, markvissa innleiðingu og eftirfylgni.



Næstu skref

Við mótun málefnasviðsstefna munu ráðuneyti og stofnanir geta stuðst við handbók fyrir starfsmenn Stjórnarráðsins um stefnumótun og áætlanagerð. Gert er ráð fyrir að forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið styðji við og hafi eftirlit með framsetningu stefnumótunar innan ráðuneyta. Til að auka yfirsýn og samhæfingu málefnasviðsstefna eru uppi hugmyndir um stofnun samráðshóps (e. policy profession board) allra ráðuneyta. Slík samhæfing þvert á kerfið yrði til mikilla bóta í „lóðréttum“ kerfum þar sem áskoranir eru í auknum mæli „láréttar“. Það er framundan breytt vinnulag sem hefur í för með sér markvissari stefnumótun, skýrari framtíðarsýn og aukinn stöðugleika í íslenskri stjórnsýslu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×