Lífið

Framtaksamur frændi sló upp balli til styrktar fjögurra ára frænku með hvítblæði

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Sverrir er strax farinn að huga að næsta styrktarballi.
Sverrir er strax farinn að huga að næsta styrktarballi. mynd/sverrir ómar

„Þessi hugmynd spratt í sumar, þegar ég fór að hugsa hvað ég gæti gert til að gleðja litlu stelpuna í gegnum þessi erfiðu veikindi,“ segir Sverrir Ómar Victorsson, sem á föstudag í síðustu viku sló upp balli til styrktar frænku sinni, hinni fjögurra ára Tönju Kolbrúnu Fannarsdóttur, sem greindist með hvítblæði fyrr í ár.

Sjá einnig: Slappleiki reyndist hvítblæði

Hátt í fjögur hundruð ungmenni mættu á styrktarballið, sem haldið var í Hvíta húsinu á Selfossi, og söfnuðust alls 450 þúsund krónur. „Ég fékk glæsilega tónlistarmenn til að styrkja mig og þetta heppnaðist alveg gríðarlega vel,“ segir Sverrir.

Tanja Kolbrún greindist með hvítblæði fyrr á þessu ári.

Tanja Kolbrún greindist með hvítblæði í mars síðastliðnum, þá þriggja ára gömul. Faðir hennar, Fannar Geir Ólafsson, féllst á að segja Vísi frá veikindum dóttur sinnar, í apríl. Tanja hafði verið slöpp í nokkra daga, áður en foreldrar hennar fóru með hana til læknis. Vakthafandi læknir sendi hana í blóðprufu sem vakti grun um að um hvítblæði væri að ræða. Grunur hans var staðfestur skömmu síðar á Barnaspítalanum. Fannar segir fregnirnar hafa verið fjölskyldunni áfall, en að þeim verði tekið með jákvæðnina að vopni, enda hafi fjölskyldan fundið fyrir miklum stuðningi allt í kring.

Mikið þakklæti

Sverrir Ómar segir fjölskylduna afar þakkláta fyrir þennan mikla stuðning. Nær allir Selfyssingar séu boðnir og búnir til að leggja þeim lið. „Það þekkjast flest allir á Selfossi og hér ríkir mikil samstaða. Til dæmis voru fjölmörg fyrirtæki sem höfðu samband við mig og buðust til að gefa gjafabréf í happadrættið, og rútufyrirtæki Guðmundar Tyrfingssonar bauðst til að gefa vinnu sína og sækja ungmenni í uppsveitum til að koma þeim til og frá Hvíta húsinu,“ segir hann.

„Ég talaði við Fannar, pabba Tönju, hann var alveg í skýjunum með þetta allt saman – hann eiginlega bara trúði þessu ekki. Hún hefur verið á spítalanum undanfarna daga þannig að það var bara gaman að gleðja þau svona," segir Sverrir.

Sverrir bætir við að hann vilji halda áfram að aðstoða litlu frænku sína. Því sé hann þegar farinn að huga að næstu styrktartónleikum, sem fyrirhugaðir séu í byrjun næsta árs.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×