Innlent

Forseti Íslands sendir samúðarkveðjur

Bjarki Ármannsson skrifar
"Hugur okkar og samúð séu hjá fjölskyldum þeirra sem létu lífið,“ segir í kveðju til Nepal.
"Hugur okkar og samúð séu hjá fjölskyldum þeirra sem létu lífið,“ segir í kveðju til Nepal. Vísir/Getty/Andri Marinó
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur í dag sent frá sér og íslensku þjóðinni samúðarkveðjur til dr. Ram Baran Yadav, forseta Nepal, vegna hörmunganna sem jarðskjálftar þar hafa haft í för með sér um helgina.

„Hugur okkar og samúð séu hjá fjölskyldum þeirra sem létu lífið, hinum slösuðu og öllum þeim sem enn leita ættingja og nágranna í rústunum,” segir í tilkynningu frá skrifstofu forseta. „Jarðskjálftarnir séu áminning til allra jarðarbúa um kraftinn sem býr í iðrum jarðar og mótar örlög þjóða, kraftinn sem um aldir hefur verið ríkur þáttur í lífi fólksins sem byggir hin tignarlegu en örlagaþrungnu svæði Himalayjafjalla.

Íslendingar þekki af eigin raun glímuna við eldfjöll og jökla, afleiðingar jarðskjálfta og snjóflóða og því tökum við af helium hug höndum saman með öðrum þjóðum við að efla hjálparstarf sem verði æ brýnna með hverjum degi.”


Tengdar fréttir

Börnin skelkuð en heil á húfi

Margrét Ingadóttir sem rekur heimili fyrir munaðarlaus börn í Katmandú í Nepal segir að það hafi verið afar erfitt að ná ekki sambandi við heimilið eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir landið í dag.

Tugir þúsunda á vergangi í Nepal

Yfirvöld í Nepal hafa staðfest að 1500 manns hafi farist í skjálftanum en óttast er að tala látinna eigi enn eftir að hækka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×