Innlent

Formaður Samfylkingarinnar: „Töluverð vonbrigði“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Logi Már og Katrín Jakobsdóttir á fundinum í dag.
Logi Már og Katrín Jakobsdóttir á fundinum í dag. vísir/anton brink
Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir það nokkur vonbrigði að óformlegar viðræður flokkanna fimm hafi siglt í strand. Að hans mati þurfti lítið til að flokkarnir næðu saman.  

„Frá mínum bæjardyrum séð eru þetta töluverð vonbrigði. Ég held að þetta hafi verið leysanlegt. Við vorum svona nokkuð sammála um meginhugmyndina og svo átti eftir að útfæra hana. Það stundum snúið en það er alltaf hægt,“ segir Logi.

Hann segir að erfiðustu málin hafi verið sjávarútvegsmál og ríkisfjármál, en vildi þó lítið tjá sig um það að öðru leyti. Heimildir fréttastofu herma þó að málin hafi fyrst og fremst strandað á Vinstri grænum.

„Það voru einhverjir í hópnum sem töldu sig ekki hafa sannfæringu um að við næðum saman í tveimur þremur málum.  Ég taldi hins vegar að þetta væri meira og minna handavinna sem væri eftir og að við höfum séð vel í land. En ég ber auðvitað virðingu fyrir því að hver og einn verður að meta þetta út frá sinni tilfinningu,“ segir Logi.

Logi segist binda vonir við að flokkarnir fái nú örlítið svigrúm um stund. „Ég hefði talið að í þessu andrúmi sem er núna að forsetinn ætti kannski að gera það sama og síðast, þegar Birgitta fékk það, að láta þetta svolítið liggja. Menn þurfa pínu að hugsa og ég vil taka það fram að þetta er búið að vera ótrúlega gagnlegt samtal og gott og fært flokkana dálítið nálægt hvor öðrum og meiri skilning á stefnu hvers annars.“


Tengdar fréttir

Fundinum frestað um stund að beiðni VG

Fundi formanna flokkanna fimm sem hafa átt í óformlegum stjórnarmyndunarviðræðum hefur verið frestað um eina klukkustund, en hann átti að hefjast nú klukkan tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×