Innlent

Fordæmir allt ofbeldi og beitingu vopnavalds á svæðinu

Atli Ísleifsson skrifar
Utanríkisráðherra segir að það verði að finna friðsamlega lausn á deilu Ísraela og Palestínumanna og hún felst í tveggja ríkja lausninni.
Utanríkisráðherra segir að það verði að finna friðsamlega lausn á deilu Ísraela og Palestínumanna og hún felst í tveggja ríkja lausninni. Vísir/Pjetur
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lýst yfir þungum áhyggjum af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs og harmar að almennir borgarar, þar á meðal fjöldi barna, hafi látið lífið í árásum Ísraela á Gaza.

"Ég fordæmi allt ofbeldi og beitingu vopnavalds á svæðinu. Það er skýlaus krafa að ísraelsk stjórnvöld stöðvi árásir sínar á Gaza sem hafa leitt til mikilla hörmunga fyrir almenna borgara. Að sama skapi verður árásum á Ísrael að linna þegar í stað" segir Gunnar Bragi í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Gunnar Bragi segir það mikið áhyggjuefni að tilraunir til að lægja öldurnar hafi enn sem komið er engan árangur borið. Báðir deiluaðilar beri ábyrgð og verði að vinna að því að stilla til friðar en ábyrgð Ísraels, sem hefur yfirgnæfandi hernaðarmátt, er sérstaklega mikil eins og tölur um fjölda fallinna borgara á Gaza sanna.

"Það verður að finna friðsamlega lausn á deilu Ísraela og Palestínumanna og hún felst í tveggja ríkja lausninni. Nú hefur enn og aftur komið hörmulegt bakslag í tilraunir til leysa þessa áratuga löngu deilu. Þá vekur það áhyggjur hve öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er vanmáttugt til að takast á við þennan ófrið. Ég tel afar brýnt að öryggisráðið beiti sér af fullum þunga í málinu" segir utanríkisráðherra. 


Tengdar fréttir

Hrikalegt ástand á Gazaströndinni

Sextán Palestínumenn hið minnsta féllu í loftárásum Ísraelshers í nótt og hafa nú utanríkisráðherrar arabaríkja ákveðið að boða til fundar vegna deilunnar milli Ísraelsstjórnar og Hamas á Gazaströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×