Innlent

Fólki ráðlagt að standa ekki lengi í nágrenni við Múlakvísl vegna gasmengunar

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá Múlakvísl.
Frá Múlakvísl. Vísir/Jóhanna
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur varað fólk við að standa ekki lengi í nágrenni við Múlakvísl vegna gasmengunar. Nefndin setti tilkynningu á Facebook á áttunda tímanum í kvöld þar sem bent var á að jarðhitavatn rennur í Múlakvísl. Aukin rafleiðni hefur mælst í ánni og gasmælingar á svæðinu sýna há gildi á brennisteinsdíoxíði og brennisteinsvetni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×