Fótbolti

Fjórða tap Jón Daða og félaga í röð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
vísir/getty
Ekkert gengur hjá Jóni Daða Böðvarssyni og félögum hans í þýska 2. deildar liðinu Kaiserslautern þessar vikurnar.

Liðið tapaði fjórða leiknum í röð í deildinni í kvöld þegar lá í valnum heimavelli gegn Bochum, 2-0.

Simon Terodde kom gestunum í Bochum yfir með marki úr vítaspyrnu á 48. mínútu og hann var svo aftur á ferðinni á síðustu mínútu í venjulegum leiktíma.

Kaiserslautern er búið að tapa fjórum leikjum í röð og ekki unnið í síðustu fimm. Það hefur aðeins innbyrt eitt stig af síðustu fimmtán mögulegum.

Liðið færist nær fallsvæðinu og er nú í tólfta sæti af 18 liðum með 31 stig, sjö stigum frá fallsvæðinu.

Jón Daði var í byrjunarliðinu í kvöld og spilaði allan leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×