Enski boltinn

Fjöldi liða vill semja við Cleverley

Tom Cleverley.
Tom Cleverley. vísir/getty
Það stefnir í mikinn slag um þjónustu miðjumannsins Tom Cleverley í sumar.

Leikmaðurinn er í láni út leiktíðina hjá Aston Villa frá Man. Utd. og þar er hann búinn að spila 30 leiki í vetur.

Samningur hans við Man. Utd rennur út í sumar og Cleverley getur því samið við það lið sem hann vill. Það vantar ekki áhugann hjá liðum í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal, Tottenham, West Ham og Aston Villa hafa öll áhuga á því að semja við miðjumanninn.

Man. Utd hefur engan áhuga á því að framlengja og verður áhugavert að sjá hvar Cleverley endar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×