Skoðun

Fiskeldi er stóriðja Vestfjarða

Sturla Rafn Guðmundsson skrifar
Þegar ég kom fyrst til Ísafjarðar uppúr 1970 til að heimsækja tilvonandi tengdaforeldra mína voru tvö stór frystihús og minnir mig tvær rækjuvinnslur starfandi í bænum. Vélsmiðja, skipasmíðastöð og fjölmörg önnur þjónustufyrirtæki voru þar einnig og því mikið umleikis í bænum. Svona var þetta í öllum bæjarfélögum á Vestfjörðum. En síðan kom kvótakerfið og allt breyttist á skömmum tíma. Á Vestfjörðum höfðu ekki verið stundaðar uppsjávarveiðar um áratuga skeið og því öll áhersla á bolfiskveiðar. En svo kom reiðarslagið, hvert skipið af öðru var keypt í burtu og kvótinn með og á sama tíma hvarf rækjan. Atvinnan hvarf, hús lækkuðu í verði og voru jafnvel óseljanleg og fólkinu fækkaði. Ekki falleg lýsing þetta.

Nú er líf farið að færast aftur í firðina og enn er það fiskurinn sem er bjargvættur byggðanna en að þessu sinni lax; lax sem er ræktaður í kvíum. Fiskeldi á Íslandi hófst um miðjan níunda áratuginn en gekk heldur illa af ýmsum ástæðum en þó væntanlega vegna vankunnáttu og ónógu fjármagni. Einna helst hefur tekist að rækta silung á landi en kvíaeldi í sjó gengið illa. Á Tálknafirði hefur þó verið kvíaeldi um nokkurn tíma og gengið þokkalega. Þetta segir okkur að skyndilausnir eins og okkur Íslendingum er tamt að nota duga ekki heldur er þekking, fjármagn og hæfilegur skammtur af þrautseigju það sem dugar. Nú virðist þetta allt vera til staðar og miklar framkvæmdir hafnar og enn stærri áform í sigtinu. Vissulega eru þetta gleðileg tíðindi og ánægjulegt að Vestfirðir séu að ná reisn sinni aftur og á nýjan leik er það sjórinn sem er bjargvættur því á honum hafa Vestfirðingar átt allt sitt undir frá því að land byggðist. Til að koma laxinum á markað þarf að flytja hann landleiðina til Keflavíkur en þá vandast málið. Samgöngur við Vestfirði eru þær verstu á landinu og hefur fjórðungurinn setið eftir þegar kemur að vegaframkvæmdum. Þessu verður að breyta og setja meira fjármagn í samgöngur sem fyrst.  

Þegar kemur að atvinnumálum er stefna Viðreisnar skýr. Búa þarf atvinnurekstri stöðugt og alþjóðlegt viðskiptaumhverfi, án hafta, með stöðugan gjaldmiðil og viðunandi vaxtastig. Með upptöku myntráðs er mögulegt að ná þessum markmiðum. Viðreisn leggur enn fremur áherslu á sjálfbært atvinnulíf og því er mikilvægt að fylgst verði náið með álagi á einstaka firði svo lífríkið hljóti ekki skaða af. Nýsköpun, frumkvæði og efling frumkvöðlastarfsemi er eitt af leiðarstefjum Viðreisnar. Alltaf þarf að leita nýrra tækifæra til þess að auka framleiðni og skapa aukin verðmæti. Mikilvægt er að efla menntun á sviði nýsköpunar og tækniþróunar og koma á fót frumkvöðlasetri og væri vel við hæfi að það væri staðsett á Vestfjörðum. Að lokum vil ég óska Vestfirðingum til hamingju með laxeldið sem jafna má við stóriðju.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×