Fótbolti

Firmino með eina markið í sigri Brasilíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Firmino í landsleik með Brasilíu.
Firmino í landsleik með Brasilíu. vísir/getty
Roberto Firmino var hetja Brasilíu gegn Síle í vináttulandsleik, en leikið var á Emirates leikvangnum, heimavelli Arsenal. Eina markið kom í síðari hálfleik.

Fyrri hálfleikurinn var ekki mikið fyrir augað, en Brassarnir átti þó ívið betri færi. Douglas Costa fékk meðal annars gott færi eftir sendingu frá Marcelo, en hann náði ekki að skora. Staðan markalaus í hálfleik.

Eina markið kom eftir 71. mínútna leik, en markið gerði Roberto Firmino. Hann lagði boltann smekklega í netið, en Firmino er á mála hjá Hoffenheim.

Fleiri urðu mörkin ekki og Brassarnir unnu 1-0 sigur. Byrjunarlið beggja liða má sjá hér að neðan.

Byrjunarlið Brasilíu: Jefferson - Danilo, Marcelo, Miranda, Thiago Silva - Douglas Costa, Fernandinho, Souza - Coutinho, Luiz Adriano, Neymar.

Byrjunarlið Brasilíu: Claudio Bravo - Mena, Gonzalo Jara, Miiko Albornoz, Mauricio Isla - Arturo Vidal, C. Aránguiz, Gary Medel, R. Millar, Alexis Sanches.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×