Formúla 1

Finnskur árekstur á lokahringnum | Sjáðu atvikið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Finnsku ökuþórarnir Valtteri Bottas sem ekur fyrir Williams og Kimi Raikkonen sem ekur fyrir Ferrari í Formúlu 1 kappakstrinum lentu í árekstri á lokametrunum í Sochi í dag er þeir börðust um síðasta sætið á verðlaunapallinum.

Raikkonen og Bottas voru á eftir Sergio Pérez þegar tveir hringir voru eftir en Pérez var í vandamálum með bíl sinn. Voru dekk hans slitin og vængurinn brotinn en honum tókst að halda finnsku ökuþórunum fyrir aftan sig allt fram að lokahringnum.

Eftir að hafa komist fram fyrir Pérez reyndi Raikkonen að skjótast fram úr landa sínum en keyrði inn í hliðina á Bottas sem missti stjórn á bílnum sínum og lauk keppni þegar hann klessti á vegg.

Bíll Raikkonen var laskaður eftir atvikið og nýtti Pérez sér það og skaust fram úr Raikkonen á lokahringnum og tók þriðja sætið í Sochi.

Raikkonen missti einnig hinn brasilíska Felipe Massa fram úr sér á lokametrunum eftir að hafa verið með rúmlega tíu sekúndu forskot á Massa fyrir áreksturinn.


Tengdar fréttir

Hamilton fyrstur í mark í Rússlandi

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark á Mercedes bílnum í Rússlandi. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari. Sergio Perez kom Force India bílnum í þriðja sæti í mark á ótrúlegan hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×