Sport

Fimmtugasti Super Bowl á 30 sekúndum | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Annar fór sáttari heim.
Annar fór sáttari heim. Vísir/Getty
Denver Broncos tryggði sér NFL-titilinn á sunnudaginn eftir 24-10 sigur á Carolina Panthers í Super Bowl en þetta var í fimmtugasta sinn sem sigurvegarar Þjóðardeildarinnar og sigurvegar Ameríkudeildarinnar mætast í sérstökum úrslitaleik í ameríska fótboltanum.

Super Bowl er mikill viðburður í Bandaríkjunum enda stærsti íþróttaviðburður ársins. Það er ekki bara leikurinn heldur allt annað í kringum hann. Ekki minnkaði umgjörð leiksins við þessi stóru tímamót.

Super Bowl hálfleikssýningin er gríðarlega vinsæl en að þessu sinni trylltu Coldplay, Beyoncé og Bruno Mars lýðinn í hálfleik.

Super Bowl auglýsingarnar eru líka sér kapítuli út af fyrir sig en fyrirtæki þurfa að borga gríðarlega upphæðir fyrir þær enda ekki hægt að ná til fleiri áhorfenda í gegnum sjónvarp.

Bandaríkjamenn elska það að gera mikið af öllu og þrátt fyrir að leikurinn sjálfur hafi ollið smá vonbrigðum þá var sýningin fyrsta flokks að venju.

Sports Illustrated lét setja saman myndband sem var sett saman úr mörgum yfirlitsmyndum af vellinum á meðan Super Bowl leiknum stóð.

Í þessu 30 sekúndna myndbandi má sjá völlinn allt frá því að fyrstu áhorfendurnir fara að koma þar til að leikmenn Denver Broncos fagna titlinum í leikslok.

Það er mjög skemmtilegt að fylgjast með umgjörð leiksins í þessu skemmtilega myndbandi en sjálfur leikurinn rennur hinsvegar framhjá á augabragði.

Timelapse video of Super Bowl 50.

Relive Super Bowl 50.In 30 seconds.

Posted by Sports Illustrated on 9. febrúar 2016
NFL

Tengdar fréttir

Metáhorf á Super Bowl

Sögulegt sjónvarpsmet var sett í Bandaríkjunum á sunnudag er Super Bowl 50 fór fram. Aldrei hafa fleiri í sjónvarpssögu Bandaríkjanna horft á einn stakan viðburð.

Fullkomin kveðjustund hjá Peyton?

Foli mætir gæðingi í 50. Super Bowl-leiknum sem fram fer í San Francisco á sunnudaginn. Ríður Peyton Manning út í sólarlagið sem meistari eða stimplar Cam Newton sig inn sem besti leikmaðurinn í NFL?

Peyton fór í Disneyland

"I´m going to Disneyland“ var vinsæl lína hjá bandarískum íþróttamönnum er þeir unnu stórviðburði. Minna hefur farið fyrir þessum frasa á síðustu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×