Formúla 1

Fimm vélar í stað fjögurra

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Daniel Ricciardo á Red Bull er kominn í alvarleg vélavandræði.
Daniel Ricciardo á Red Bull er kominn í alvarleg vélavandræði. Vísir/Getty
Breytingar á reglugerðum í Formúlu 1 eru væntanlega sem heimila ökumanni að nota fimm vélar á tímabilinu.

Reglurnar heimila hverjum ökumanni að nota aðeins fjórar vélar á hverju tímabili. Eftir erfiða byrjun er ljóst að margir munu lenda fljótt í vandræðum vegna þessa.

Þegar fimmta vélin er tekin í notkun koma til áhrifa refsingar, ökumaður er færður aftur á ráslínu. Fyrst sem nemur 10 sætum og svo fimm í hvert skipti sem ný vél er tekin í notkun.

Öll Formúlu 1 liðin hafa nú samþykkt að hækka heimildina um eina vél.

„Við höfum samhljóða ákveðið að hækka heimildina, Bernie Ecclestone var meðal aðila sem samþykktu það. Það er því nú aðeins formsatriði að koma breytingunni í gegn,“ sagði Christian Horner, liðsstjóri Red Bull sem hefur orðið einna verst úti í vélamálum á tímabilinu.

Daniel Ricciardo, annar ökumanna Red Bull mun í næstu keppni nota sína fjórðu vél. Næsta keppni er aðeins sú fimmta af 19 og því um langan veg að fara fyrir þessa einu vél. Væntanlega of langan veg. Ricciardo mun af öllum líkindum þurfa að sæta refsingu á einhverjum timapunkti.


Tengdar fréttir

Hamilton á ráspól í fjórða skiptið

Ökuþórinn Lewis Hamilton verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum í Barein um helgina, en þetta er í fjórða skiptið sem hann verður á ráspól á þessu tímabili.

Bílskúrinn: Barátta í Barein

Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel.

Hamilton fyrstur í mark í Barein

Lewis Hamilton á Mercedes vann Formúlu 1 keppnina í Barein í dag. Hamilton vann sína þriðju keppni á tímabilinu. Kimi Raikkonen á Ferrari varð annar og Nico Rosberg á Mercedes þriðji.

Bílskúrinn: Sögur af Sjanghæ

Lewis Hamilton snéri aftur á efsta þrep verðlaunapalsins í Kína. Fast á hæla hans fylgdi pirraður liðsfélagi hans, Nico Rosberg. Allt er þá orðið eðlilegt aftur í Formúlu 1.

Lauda: Þetta mun allt velta á ræsingunni á morgun

Lewis Hamilton er með ráspól á morgun eftir tímatökuna í dag. Niki Lauda telur að ræsingin geti skipt öllu fyrir framvindu keppninnar á morgun. Keppnin verður gríðarlega spennandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×