Innlent

Fimm kílómetra löng bílaröð vestur af Selfossi

Samúel Karl Ólason skrifar
Umferðin gengur hægt að Selfossi.
Umferðin gengur hægt að Selfossi. Mynd/Sjonni Dan
Gífurleg umferðarteppa er nú við Selfoss og nær hún langt út fyrir bæinn. Þegar þetta er skrifað (15:20) giskaði Lögreglan á Suðurlandi á að bílaröðin næði í einhverja fimm kílómetra vestur frá Selfossi.

Brúin yfir Ölfusá og hringtorgið austan megin við ánna mynda í raun flöskuháls sem umferðin gengur hægt um. Fjölmargir eru nú á leið í Landeyjarhöfn og á Suðurland. Nú er töluverður fjöldi fólks í Landeyjahöfn og á leið til Vestmannaeyja.

Frá Landeyjahöfn.Vísir/MagnúsHlynur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×