Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. febrúar 2013 13:20
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag átján ára gamlan pilt í fimm ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stungið fyrrverandi ástkonu föður síns margsinnis með hníf 21. apríl síðastliðinn. Konan var hætt komin eftir árásina og þurfti að grípa inn í með skurðaðgerð til þess að bani hlytist ekki af. Maðurinn játaði að hafa veist að konunni, en neitaði að hafa ætlað að ráða henni bana. Konan lá á sjúkrahúsi í þrjár vikur eftir árásina. Pilturinn, sem býr með föður sínum í sama húsi og konan en ekki sömu íbúð, sagði fyrir dómi að hann hefði ætlað að hóta brotaþola. Hann hefði viljað að hún færi í burtu og léti föður sinn í friði. Tilgangurinn hefði aldrei verið að meiða hana, eða drepa hana. Í skýrslutökum fyrir dómi kvaðst maðurinn ekki muna eftir að hafa stungið konuna , en sá vitnisburður stangast á við vitnisburð hans við þingfestingu málsins. Það stangast líka á við vitnisburð hans í skýrslutökum hjá lögreglu þar sem hann kvaðst muna eftir að hafa stungið hana einu sinni eða tvisvar. Í skýrslutöku fyrir héraðdómnum kvaðst pilturinn muna eftir þessari skýrslutöku hjá lögreglunni en skýrði svör sín með því að hann hefði verið spurður leiðandi spurninga, þrátt fyrir að hann hefði tekið fram að hann myndi ekkert eftir atburðunum. Þá sagðist pilturinn ekki muna eftir því að hafa veist að brotaþola með höggum og spörkum í höfuð eða veist að henni aftan frá með kyrkingartaki. Í dómnum segir að við sönnunarmat í málinu sé játning piltsins hjá lögreglu og við þingfestingu málsins höfð til hliðsjónar, enda hafi hann ekki veitt haldbæra skýringu á fráhvarfi sínu frá umræddum framburði. Því þyki sannað að pilturinn hafi veist að brotaþola með hnífi og stungið hana ítrekað í líkamann.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira