Skoðun

Ferðaþjónustan getur greitt sitt

Mikael Torfason skrifar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur boðað breytingar á virðisaukaskatti og stefnt er að því að þær breytingar taki gildi um næstu áramót. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, sagði í fréttum Bylgjunnar í síðustu viku að þessar breytingar ættu að ná til ferðaþjónustunnar sem býr við flókið og torskilið skattkerfi. „Þegar ég hef skoðað þessi skattamál betur núna síðustu mánuði er ég eiginlega komin á þá skoðun að við ættum að hækka virðisaukaskattinn á ferðaþjónustuna vegna þess að nú er velta ferðaþjónustunnar orðin meiri en sjávarútvegsins,“ sagði Vigdís.

Á Íslandi er virðisaukaskattur ýmist sjö eða tuttugu og fimm komma fimm prósent. Reyndar er þetta enn flóknara þegar ferðaþjónustan er annars vegar því sumt ber engan virðisaukaskatt, eins og til dæmis fólksflutningar, innanlands- og millilandaflug auk fargjalds í ferjur og hópferðabíla og auðvitað leigubíla. Það er enginn virðisaukaskattur rukkaður þegar þú tekur leigubíl en ef þú leigir bílaleigubíl er vaskurinn svokallaði tuttugu og fimm komma fimm prósent. Flækjustigið endar ekki hér því ef þú leigir þér kajak eða hest eða köfunarbúnað þarftu að borga vask. En ef um skipulagða hópferð er að ræða með fararstjóra þá er enginn vaskur af hvalaskoðuninni, hestaferðinni eða sjóstangaveiðinni.

Alls konar glufur eru í kerfinu sem valda ruglingi eins og til dæmis að ef einhver kaupir sér leyfi til að veiða fimm fiska í vatni þarf söluaðili að rukka virðisaukaskatt en veiðileyfi í vatni, ef ekki er tilgreint hversu margir fiskar ætlað er að veiðist, er leyfið undanþegið vaski. Eins og Vigdís benti á í síðustu viku þá var þetta kerfi á sínum tíma hugsað til að styðja við nýja atvinnugrein sem átti erfitt uppdráttar. Nú hins vegar er þetta orðin ein aðalatvinnugrein okkar og svo mikil er sóknin og aukningin að það stórsér á landinu okkar. Ríkiskassinn þarf tilfinnanlega á fjármunum að halda til að mæta þessum mikla ágangi ferðamanna og því sjálfsagt að rukka virðisaukaskatt.

Bjarni Benediktsson hefur boðað að breytingarnar sem hann vill gera á kerfinu séu til einföldunar, lækka jafnvel efra þrepið og hækka það neðra og fækka undanþágum; skynsamlegt því undanþágurnar eiga að vera fáar sem engar. Mikilvægt er að allir sitji við sama borð. Hugsanlega geta einhverjar undanþágur frá þeirri reglu verið nauðsynlegar en það verður að hugsa þá hugsun til enda og heildrænt. Ekki þýðir að miða við stöðu einhvers eins í dag, ef það leiðir óhjákvæmilega til kerfis sem er óskiljanlegt og götótt – stagbæta svo í glufurnar þannig að þetta fer meira og minna í sjálft sig. Að öllu jöfnu ætti skattkerfið að vera einfalt, gegnsætt og beinskeytt. Að menn gleymi ekki tilganginum. Þannig er það ekki í dag.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×