Tíska og hönnun

Féllu vel í kramið hjá erlendu blaðamönnunum

MYNDIR/Kría Freysdóttir
Sýning Farmers Market á Reykjavík Fashion Festival sem fram fór í Hörpu í gær var mikið sjónarspil. Fyrirsæturnar gengu sýningarpallana við lifandi tónlist og fylgihlutirnir voru allt frá skíðastöfum til reiðtygja.

Eins og áður á sýningum hjá Farmers Market bar stíliseringin af þar sem ull og loð var í brennipunkti. Fötunum var blandað saman á virkilega fallegan hátt og hinir ýmsu fylgihlutir spiluðu stórt hlutverk. Nýjungarnar hefðu þó mátt vera fleiri, en margar af flíkunum á sýningunni höfum við séð áður. Línan var einstaklega íslensk og féll vel í kramið hjá erlendu blaðamönnunum.

Sjá allar myndirnar hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×