Innlent

Farið fram á gæsluvarðhald yfir skipverjunum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Annar maðurinn leiddur fyrir dómara.
Annar maðurinn leiddur fyrir dómara. Vísir/anton brink
Uppfært klukkan 12:29: Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað annan skipverjann í tveggja vikna langt gæsluvarðhald en lögreglan fór fram á fjögurra vikna varðhald. Lögreglan hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Hinn skipverjinn er nú fyrir dómara.

Tveir skipverjar á Polar Nanoq, sem grunaðir eru um aðild að hvarfi Birnu Brjánsdóttur, sem saknað hefur verið frá því á laugardag, verða færðir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness í hádeginu í dag þar sem krafist verður gæsluvarðhalds yfir þeim.

Ekki liggur fyrir hvenær farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þriðja skipverjanum.

Mennirnir tveir voru fluttir með lögreglubíl frá lögreglustöðinni á Hverfisgötu áleiðis í Hafnarfjörð á ellefta tímanum í dag. Þeir voru handteknir í hádeginu í gær og frá þeim tíma má lögregla halda þeim í sólarhring án gæsluvarðhaldsúrskurðar. Sá frestur rennur út í hádeginu í dag.

Lögreglubíll mætti með mennina tvo í héraðsdóm um klukkan ellefu í morgun og var farið með annan manninn fyrir dómara klukkan 11:30. Í framhaldinu verður farið fram á gæsluvarðhald yfir hinum klukkan 12.

Mennirnir þrír voru yfirheyrðir í alla nótt og þá lauk rannsókn um borð í skipinu snemma í morgun. Þriðji maðurinn var handtekinn á níunda tímanum í gærkvöld og getur lögregla því haldið honum til sama tíma í kvöld áður en fara þarf fram á gæsluvarðhald yfir honum.



Frétt síðast uppfærð klukkan 12:29.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×