Fótbolti

Fanndís fór illa með kínverska markvörðinn | Sjáðu markið hennar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fanndís Friðriksdóttir á æfingu út í Kína.
Fanndís Friðriksdóttir á æfingu út í Kína. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta komst í 1-0 á móti Kína í leik þjóðanna á Sincere Cup æfingamótinu í Kína.

Fanndís Friðriksdóttir skoraði fyrsta mark leiksins strax á 7. mínútu þegar hún nýtti sér mistök í kínversku vörninni.

Fanndís fékk langa sendingu frá fyrirliðanum Söru Björk Gunnarsdóttur og þefaði upp færið eins og sannur markaskorari.

Fanndís fór illa með kínverska markvörðinn þegar hún fór framhjá honum og setti svo boltann í tómt markið.

Þetta var níunda mark hennar fyrir íslenska kvennalandsliðið.

Það er hægt að sjá markið hennar Fanndísar á Twitter-síðu kínverska kvennalandsliðsins hér fyrir neðan.

Nokkru síðar átti Ísland skalla í slána.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×