Sport

Fær Barao uppreisn æru gegn Dillashaw?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Dillashaw fagnar sigrinum á Barao í fyrra.
Dillashaw fagnar sigrinum á Barao í fyrra. Vísir/Getty
Fyrir rúmu ári síðan mættust þeir Renan Barao og TJ Dillashaw um bantamvigtarbelti UFC. Fyrir bardagann var Barao mun sigurstranglegri en eftir sannfærandi en óvæntan sigur Dillashaw hefur taflið snúist við.

Renan Barao hafði ekki tapað í 33 bardögum í röð þegar kom að bardaganum gegn TJ Dillashaw þann 24. maí 2014. Barao var bantamvigtarmeistari UFC og að margra mati einn besti bardagamaður heims pund fyrir pund.

Andstæðingur hans átti ekki mikla möguleika samkvæmt veðbönkum. Dillashaw þótti efnilegur en full óreyndur fyrir bardaga að þessari stærðargráðu og bjóst enginn við öðru en enn öðrum sigri Barao.

Öllum að óvörum gjörsigraði Dillashaw hinn brasilíska Barao. Hann hafði yfirburði frá fyrstu sekúndu bardagans þangað til hann rotaði Barao í fimmtu og síðustu lotunni með hásparki. Hér má sjá bardaga þeirra í heild sinni og frábæran upphitunarþátt UFC.

Kapparnir áttu að mætast aftur í ágúst í fyrra en bardaginn var blásinn af aðeins sólarhringi fyrir bardagann. Daginn sem vigtunin fór fram var Barao lagður inn á sjúkrahús þar sem hann hafði reynt að skera of mikið niður til að ná 135 punda takmarkinu og var því meinað að keppa. Í hans stað kom Joe Soto sem Dillashaw sigraði með hásparki í 5. lotu eftir mikla yfirburði.

Í fyrri bardaga Dillashaw og Barao tókst Dillashaw að kýla Barao niður í fyrstu lotu. Margir vilja meina (þar á meðal Barao og hans lið) að Barao hafi ekki getað jafnað sig eftir þetta högg og því hafi sigur Dillashaw verið svo sannfærandi. Aðrir telja að Dillashaw sé einfaldlega betri bardagamaður en Barao.

Hversu miklu máli skipti þetta högg í fyrstu lotu? Þetta er spurning sem bardagaaðdáendur hafa deilt um í rúmt ár og á morgun verður henni svarað.

Að þessu sinni er Dillashaw sigurstranglegri samkvæmt veðbönkum og því hefur taflið snúist við. Barao getur þó hefnt ófaranna frá því í fyrra og endurheimt beltið.

Bardaginn er aðalbardaginn á UFC on Fox 16 bardagakvöldinu sem fer fram í kvöld. Bardaginn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin á miðnætti. Eftirtaldir fjórir bardagar verða á dagskrá:

Titilbardagi í bantamvigt: TJ Dillashaw gegn Renan Barao

Bantamvigt kvenna: Miesha Tate gegn Jessica Eye

Léttvigt: Edson Barboza gegn Paul Felder

Léttvigt: Joe Lauzon gegn Takenori Gomi

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×