Innlent

Fá tíu milljónir í Faktorshúsið

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Djúpivogur Faktorshúsið er gráa húsið fremst.
Djúpivogur Faktorshúsið er gráa húsið fremst. Fréttablaðið/Pjetur
Minjastofnun Íslands hefur veitt 10 milljóna króna styrk úr húsafriðunarsjóði vegna hins 167 ára gamla Faktorshúss á Djúpavogi. Sveitarstjórn þar segir styrkinn mjög mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu við húsið.

Fara á í samfellda vinnu við fyrsta áfanga við Faktorshúsið, það er frágang lóðar og 1. hæð, og ljúka þeim áfanga á næsta ári að því er segir á vef hreppsins. Samhliða á að halda áfram að leita stuðnings við verkefnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×