Heilsa

Ekki hægt að þegja lengur

Ástandið er alvarlegt, það fer ekki fram hjá neinum að átröskun er gríðarlega stórt vandamál hér á landi, og ekki er hægt að þegja lengur yfir því hversu illa er staðið að málum átröskunarsjúklinga innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Alma Geirdal, framkvæmdastjóri og ráðgjafi Forma, samtaka átröskunarsjúklinga.

Heilsuvísir

Góð tilfinning að þjóna

Ég lít á starf mitt sem listrænt uppeldisstarf,“ segir Þorgerður. „Kennararstarf þar sem maður tekur á móti ómótuðum unglingum. Það að ná góðum árangri í tónlistinni er auðvitað takmarkið og oft tekst með prýði að ná listrænum hæðum í starfinu.

Heilsuvísir

Siggi Pálmi

Þriðja gráðan Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson er framkvæmdastjóri From Nowhere Records, plötuútgáfufyrirtækis sem hann setti á fót ásamt tónlistarmanninum Barða Jóhannssyni. Sigurður Pálmi hefur viðskiptavitið í blóðinu enda barnabarn Pálma í Hagkaupum. Fré

Heilsuvísir

Spartanskir magavöðvar

Skotinn Gerard Butler er kannski ekki öllum kunnur eins og er. En eftir að heimurinn sér hann sem Leonidas konung höggva mann og annan í leðurbrók með rauða skikkju í myndinni 300 á hann eflaust eftir að grafa sig í minni manna. Þá sérstaklega kvenþjóðinni og samkynhneigðum.

Heilsuvísir

Michelin-kokkur á Holtinu

Hótel Holt bauð gestakokkinn Jean-Yves Johany velkominn til leiks í vikunni, en hann er fyrstur þriggja franskra kokka sem kemur hingað til lands í tengslum við frönsku menningarhátíðina Pourquoi-pas?. Kokkarnir hafa allir hlotið eina eða tvær Michelin stjörnur og því um mikinn feng fyrir íslenska matarunnendur að ræða. Tveir matreiðslumeistaranna verða á Hótel Holti, en sá þriðji hjá Sigga Hall.

Heilsuvísir

Föstudagar eru pítsudagar

Heimatilbúnar pítsur eru alltaf aðeins betri á bragðið, sérstaklega ef hollustan er höfð í huga við val á hráefni. Föstudagar eru tilvaldir pítsudagar þar sem fjölskyldan kemur saman og allir fá að velja sitt uppáhaldsálegg.

Heilsuvísir

Hressandi koffínbolli

Nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að fólk sem drekkur tvo til þrjá kaffibolla á dag verður síður þunglynt. Við búum við kaffimenningu og hjá þeirri staðreynd verður ekki komist. Virka efnið í þessum eftirlætisdrykk okkar er koffín, en það hefur örvandi áhrif á miðtaugakerfið og rannsóknir hafa sýnt fram á að kaffi getur þannig haft jákvæð og upplyftandi áhrif á skapið.

Heilsuvísir

Streita veldur heilaskemmdun

Of mikið álag á unga hugi getur haft gríðarlega slæmar afleiðingar í för með sér. Rannsóknir hafa leitt í ljós að streitan getur valdið heilaskemmdum. Skemmdirnar valda því að barnið verður minna hæft til að fást við stress í framtíðinni, magn stresshormónsins kortisól eykst í blóðrásinni og skemmdirnar breiðast út. Þetta er vítahringur sem erfitt er að losna úr.

Heilsuvísir

Einhverfa er fötlun, ekki hegðun

Gera má ráð fyrir að á Íslandi séu um 200 einstaklingar með einhverfu. Þekking á fötluninni er að sögn aðstandenda takmörkuð og skilningur oft lítill enda er um dulda fötlun að ræða þar sem hraustlega útlítandi börn eiga við mikla innri fötlun að stríða. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti Önnu Gísladóttur, móður tveggja einhverfra bræðra, sem segir einhverfa oft ekki tekna með í reikning þjóðfélagsins.

Heilsuvísir

Reykvískar lautarferðir

Klámráðstefnan Snowgathering sem halda átti hér á landi hefur verið blásin af. Meðan einhverjir fagna sigri segja aðrir þetta ósigur tjáningarfrelsisins. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur, hjúkrunar- og kynfræðing, sem segir konur sífellt sækja í sig veðrið hvað varðar kaup á kynferðislega opinskáu efni og í stað þess að stinga höfðinu í sandinn ættum við að gera kröfur um betra efni til handa öllum.

Heilsuvísir

Konur vilja líka klám

Klámráðstefnan Snowgathering sem halda átti hér á landi hefur verið blásin af. Meðan einhverjir fagna sigri segja aðrir þetta ósigur tjáningarfrelsisins. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur, hjúkrunar- og kynfræðing, sem segir konur sífellt sækja í sig veðrið hvað varðar kaup á kynferðislega opinskáu efni og í stað þess að stinga höfðinu í sandinn ættum við að gera kröfur um betra efni til handa öllum.

Heilsuvísir

Rasismi - Hvað ber að gera?

Í ljósi aukins fylgis frjálslynda flokksins veltir Haukur Már Helgason fyrir sér hvernig rasismi birtist á hliðarlínum orðræðunnar og hvað beri að gera.

Heilsuvísir