Sport

Eygló Ósk beindi orðum sínum sérstaklega til íslenskra krakka eftir sundið magnaða í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir gerði frábæra hluti í lauginni í Ríó í nótt.
Eygló Ósk Gústafsdóttir gerði frábæra hluti í lauginni í Ríó í nótt. Vísir/Anton
Ísland á tvær sundkonur í úrslitum á Ólympíuleikunum í Ríó en þetta varð ljóst eftir að Eygló Ósk Gústafsdóttir synti sig inn í úrslit í 200 metra baksundi í nótt.

Eygló Ósk átti nánast fullkomið sund, bætti Íslandsmet sitt um tuttugu sekúndubrot og sýndi og sannaða enn án ný að hún er ein af bestu baksundskonum heims.

Sjá einnig:Eygló Ósk setti glæsilegt Íslandsmet og komst í úrslit

Áður hafði Hrafnhildur Lúthersdóttir náð sjötta sætinu í 100 metra bringusundi. Eygló Ósk Gústafsdóttir syndir sitt úrslitasund aðra nótt en aðeins einn annar sundmaður hafði komist áður svona langt fyrir þessa leika í Ríó. Örn Arnarson komst í úrslit í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Sydney 2000.

„Þetta er svo geðveikt fyrir sundið á Íslandi. Ég vona svo mikið til þess að þetta hvetji alla krakka á Íslandi til að gefa allt sitt í það sem þau eru að gera. Leggi allan sinn metnað í þetta því þá geta þau gert allt sem þau vilja," sagði Eygló Ósk Gústafsdóttir eftir sundið í nótt.

Sjá einnig:Eygló Ósk í úrslit: Ég er næstum því að fara gráta

Íþróttamaður ársins 2015 notaði tækifærið eftir frábært Íslandsmetssund sitt til að höfða til ungra krakkana heima. Hún beindi orðum sínum nefnilega sérstaklega til þeirra og vill að þau trúi og leggi allan metnað sinn í að verða góð í því sem þau eru að gera.

„Þótt þið séuð frá Íslandi og eruð að æfa á Íslandi þá skiptir það ekki máli. Ég er að æfa á Íslandi. Ég hef borðað íslenskan mat og þarf að lifa á veturna á Íslandi. Það skiptir ekki máli hver þú ert eða hvað þú ert að gera eða hvar þú býrð. Ef þú gefur allt í þetta þá áttu að geta hvað sem þú vilt," sagði Eygló Ósk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×