Sport

Eygló Ósk: Var ekki að búast við því að fara í úrslit

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir í nótt.
Eygló Ósk Gústafsdóttir í nótt. Vísir/Anton
Eygló Ósk Gústafsdóttir endaði með fjórtánda besta tímann í undanúrslitum í 100 metra baksundinu og komst því ekki í úrslit.

Eygló Ósk náði bæði að bæta sinn tíma frá því í undanrásunum í dag en hún hækkað sig líka um tvö sæti.

„Ég var sextánda inn og það var smá heppni að komast inn í undanúrslitasundið. Ég var svo sem ekkert að búast við því að fara í úrslit. Það jákvæða við þetta að ég vann allavega eina í riðlinum sem þýðir að ég er hærri en ég var í morgun. Ég vann allaveg eitthvað," sagði Eygló Ósk sem vann líka eina í hinum riðlinum.

Eygló Ósk Gústafsdóttir á eftir sína bestu grein sem er 200 metra baksund og þar ætlar hún sér stærri hluti.

„Mér finnst miklu betra að byrja á 100 metra sundinu á stórmótunum. Ég tek hundrað metra sundinu aðeins minna alvarlega því það er aukagrein og svona," sagði Eygló en leiðrétti sig strax.

„Það er ekki aukagrein en ég er betri í 200 metrunum. Ég horfi á hundrað metrana aðeins meira sem upphitun og þar er gott að fá tilfinningu fyrir lauginni. Vonandi næ ég að einbeita mér nóg næstu dagana og æfa nógu vel þannig að ég geti keyrt á þetta í 200 metra baksundinu," sagði Eygló Ósk.

„Mér fannst þetta sund byrja mjög vel, mér fannst ég byrja hratt og ég fann fyrir tilfinningunni. Seinni 50 voru síðan ekki alveg nógu góðir," sagði Eygló.

„Fullkomið sund hefði verið fyrsti 50 metrarnir í undanúrslitasundinu og síðustu 50 metrarnir í morgun," sagði Eygló. Hún reif sundbolinn sinn í undanrásunum en nú hélt hann.

„Sundbolurinn var í lagi en ég var líka með aukaboli með. Ég var með fullt af boltum enda gerist þetta fyrir svo marga. Ég var því viðbúin þessu," sagði Eygló Ósk.


Tengdar fréttir

Eygló Ósk: Ég fæ gæsahúð að hugsa um þetta

Eygló Ósk Gústafsdóttir, Íþróttamaður ársins 2015, keppir í sinni fyrstu grein á Ólympíuleikunum í Ríó í dag. Framundan hjá henni er 100 metra baksund og verður hún annar Íslendingur sem keppir á leikunum á eftir Antoni Svein Mckee.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×