Fótbolti

Evra í stuði á Hrekkjavökunni: Dab-ar í gervi Chuckys

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
vísir/getty
Patrice Evra, leikmaður Juventus og franska landsliðsins, er með skemmtilegri mönnum á Instagram.

Evra tók að sjálfsögðu þátt í Hrekkjuvökunni og birti í gær skemmtilegt myndband þar sem hann brá sér í gervi morðóðu brúðunnar Chucky.

Evra tekur nokkur dansspor í búningnum og „dab-ar“ eins og krakkarnir gera. Dansinn hans Evra má sjá hér að neðan.

Evra gekk til liðs við Juventus frá Manchester United sumarið 2014. Hann varð ítalskur meistari og bikarmeistari með Juventus 2015 og 2016.

Chucky wishes you a happy Halloweeni LOVE THIS game hahaahahah#halloween#crazy

A video posted by Patrice Evra (@patrice.evra) on


Tengdar fréttir

Evra hrósar sínum forna fjanda

Patrice Evra, leikmaður Juventus, hrósaði fjandvini sínum, Luis Suárez, eftir að sá síðarnefndi fékk gullskóinn fyrir að vera markakóngur Evrópu á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×