Enski boltinn

Evra á enn eftir að ákveða sig

Stefán Árni Pálsson skrifar
Evra hefur leikið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu með þremur liðum.
Evra hefur leikið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu með þremur liðum. vísir/getty
Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, segir að Frakkinn Patrice Evra eigi enn eftir að ákveðan sig hvort hann ætli að vera áfram hjá ítalska félaginu eða yfirgefa það og mæta jafnvel aftur í ensku úrvalsdeildina.

Orðrómur hefur verið um að Evra sé jafnvel á leiðinni aftur til Manchester United en hann á aðeins fimm mánuði eftir af samningi sínum við Juve.

„Evra er frábær manneskja og mikill atvinnumaður,“ segir Allegri.

„Við höfum rétt þetta mál og hann er bara að hugsa sig um.“ Evra lék 379 leiki í öllum keppnum fyrir United en hann var hjá félaginu í fimm og hálft tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×