Bíó og sjónvarp

Evil Dead rísa frá dauðum

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Ash er ein vinsælasta hryllingsmyndapersóna allra tíma.
Ash er ein vinsælasta hryllingsmyndapersóna allra tíma.
Splattermyndirnar sívinsælu The Evil Dead munu snúa aftur á næsta ári í formi sjónvarpsþáttanna Ash vs. Evil Dead.

Tíu þættir verða gerðir fyrir sjónvarpsstöðina Starz en upprunalega Evil Dead teymið mun koma að gerð þáttanna, svo sem leikstjórinn Sam Raimi og stjarna myndanna, Bruce Campbell.

Hryllingsmyndaaðdáendur um allan heim hafa án efa glaðst yfir þessum fréttum en í þáttunum mun aðalpersónan ástsæla Ash berjast við ýmsa ófrýna djöfla og afturgöngur.

„Ash er kominn aftur til að sparka í rassinn á skrímslum. Og vá, hvað það verður helvíti mikið af þeim,“ segir Sam Raimi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×