Bíó og sjónvarp

Everest á stærstu opnunarhelgi ársins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Baltasar á tökustað Everest myndarinnar.
Baltasar á tökustað Everest myndarinnar. vísir/getty
Everest, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, var frumsýnd um allan heim á föstudaginn og þar á meðal hér á landi.

Hún varð tekju- og aðsóknarmesta kvikmynd ársins ef aðeins er litið á opnunarhelgar innanlands og fór þar fram úr Avengers 2 og Jurassic World.

Everest er einnig í 9. sæti yfir tekjuhæstu opnunarhelgi allra tíma á Íslandi. Það voru 11.393 sem sáu myndina um helgina og samtals hafa 14.254 séð myndina þegar þessi frétt er skrifuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×