Innlent

Námsmenn erlendis: Kanna hvort tilefni sé til að kæra ákvörðun ráðherra

Atli Ísleifsson skrifar
SÍNE segir það fullljóst að forsendubresturinn fyrir námsmenn erlendis sé mikill og því muni stjórn SÍNE leita allra leiða til að leiðrétta hann.
SÍNE segir það fullljóst að forsendubresturinn fyrir námsmenn erlendis sé mikill og því muni stjórn SÍNE leita allra leiða til að leiðrétta hann. Vísir/E.Ól.
Samband íslenskra námsmanna erlendis mun fara yfir það hvort tilefni sé til að kæra ákvörðun ráðherra um nýjar úthlutunarreglur til umboðsmanns Alþingis.

Í tilkynningu segir SÍNE það vera fullljóst að forsendubresturinn fyrir námsmenn erlendis sé mikill og því muni stjórn SÍNE leita allra leiða til að leiðrétta hann.

„Af gefnu tilefni vill Samband íslenskra námsmanna erlendis koma því á framfæri að verið sé að skoða hvaða möguleikar séu í stöðunni eftir ákvörðun mennta-og menningarmálaráðherra, Illuga Gunnarssonar, að skrifa undir nýjar úthlutunarreglur LÍN fyrir skólaárið 2015-2016 en með þeim er annað árið í röð verið að skera niður framfærslu námsmanna erlendis,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×