Bílar

Er þetta flinkast hjólreiðamaður heims?

Finnur Thorlacius skrifar
Danny MacAskill á flugi sem endranær.
Danny MacAskill á flugi sem endranær.
Danny MacAskill hefur birt ófá myndskeiðin þar sem hæfileikar hans á fjallahjóli koma í ljós. Hann gerir hluti sem eðlisfræðin nánast leyfir ekki og hættulega hluti sem engum heilvita manni dytti í hug að reyna. Hann heimsótti um daginn sveitirnar í Skotlandi og lék sér þar sem mest hann mátti og storkaði þyngdarlögmálinu oftsinnis.

Ekki er að spyrja að fegurð skosku sveitanna en fæstir munu taka eftir því við að horfa á hæfileika Danny, sem á örugglega fáa sína líka. Danny MacAskill er sjálfur frá Skotlandi, eða frá eyjunni Isle of Skye og er 28 ára gamall og fæddur á Þorláksmessu árið 1987.

Hann byrjaði að birta myndbönd af hjólahæfileikum sínum árið 2009 en hann æfir þessi ótrúlegu hjólatrikk sín í nokkra tíma á dag og hefur gert það síðustu 12 árin. Hann hætti starfi sínu sem vélvirki til að helga sig alfarið æfingum á hjóli sínu og er atvinnumaður í greininni og skal engan undra. Tugmilljónir manna horfa á hvert það myndskeið sem Danny birtir á vefnum af hjólreiðatækni sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×