Skoðun

Er kirkjan til mannsins vegna eða maðurinn hennar vegna?

Þórir Stephensen skrifar
Hjónavígslur samkynhneigðra eru áberandi í þjóðfélagsumræðunni nú um stundir. Kirkjan er þó fyrir allnokkrum árum búin að samþykkja hana og hefur lagt prestum í hendur ritúal fyrir slíkar athafnir. Ég veit ekki til þess, að neinum samkynhneigðum pörum hafi verið neitað um vígslu og gleðst yfir því, enda væri slíkt illa gert. En vegna ákvæðis um samviskufrelsi gæti slík neitun samt átt sér stað og er, að mínum dómi, eitthvað það fráleitasta sem prestur getur gert.

Fyrir mér eru málefni samkynhneigðar afar einföld. Í samtölum við sálfræðinga og foreldra fékk mín eigin hugsun staðfestingu. Kynhneigð þessa fólks, eins og annarra, er meðfædd. Þar með verður ekki undan því vikist að viðurkenna, að hún er sköpun Guðs. Og í mínum huga á hún öll sama rétt. Svo einfalt er það og meira þarf í raun ekki að segja.

En þá aftur að fyrirsögninni. Hvað er kirkja? Hún er samfélag þeirra, sem trúa á Jesú Krist sem drottin sinn og frelsara. Hún er, með öðrum orðum, samfélag manna, sem vilja lifa samkvæmt kenningu og fordæmi smiðsins Jesú Jósefssonar frá Nasaret.

Sjálfsögð gjörð

Hvað kenndi hann þá, og hvaða fordæmi gaf hann? Um það er margt hægt að segja, en við skulum líka einfalda það. Hinn samkynhneigði hluti mannkyns hefur átt mjög erfitt og á það enn víða. Við Íslendingar höfum borið gæfu til að skapa þessu fólki jafnrétti á flestum sviðum og yfirleitt umvafið það kærleika í samfélaginu. Mér finnst það hafa verið sjálfsögð gjörð. Þeir eru bræður okkar og systur. Það er grundvallaratriði í boðskap Krists að elska þau eins og okkur sjálf. Og hvar sem manneskja á erfitt, að ég tali nú ekki um þá sem sæta ofsóknum, þá er kallið sterkast til kristinna manna um hjálp, fórnfýsi, bróðerni. Þar hefur enginn leyfi til að spyrja um þjóðerni, trúarbrögð, kynhneigð eða annað. Þegar systkini þitt er hjálparþurfi, þá er skylda þín ljós. Þú hlýtur að gleðjast ef þú átt tækifæri til að hjálpa og þar eiga engar hugrenningar aðrar að komast að.

Sumir hafa fundið að orðinu „hjón“ um samkynhneigt par. Ég hef svarað því til, að fyrst hægt sé að kalla konu prest, þá sé hitt í lagi. En margt í kringum þetta er nýtt og framandi. Ég er þó viss um, að við erum að skapa því betra samfélag eftir því sem jöfnuður, skilningur og umburðarlyndi fá betri vaxtarskilyrði.

Jesús sagði komið til mín allir, þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir og ég mun veita yður hvíld. Sá sem reynir að leggja stein í veg fyrir hamingjusama sambúð samkynhneigðra, skilur ekki rétt dýptina í þessum boðskap.

Kirkjan varð til mannsins vegna. Þar eiga að gilda orðin í sálminum fallega: „Í húsi mínu rúmast allir, allir.“




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×