Formúla 1

Er Hamilton að kasta frá sér titilbaráttunni? | Sjáðu uppgjörsþáttinn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark og Mercedes tryggði sér heimsmeistaratitil bílasmiða. Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 fara yfir allt það helsta frá japanska kappakstrinum í dag.

Rosberg jók forskot sitt upp í 33 stig í heimsmeistarakeppni ökumanna. Lewis Hamilton þurfti að berjast fyrir sínu 100. verðlaunasæti í Formúlu 1 eftir arfa slaka ræsingu á rökum brautarhelmingi.


Tengdar fréttir

Rosberg á ráspól í Japan

Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól þegar japanski kappaksturinn hefst á morgun. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×