Innlent

Enn hefur ekkert spurst til Héðins

Atli ísleifsson skrifar
Héðinn Garðarsson.
Héðinn Garðarsson. Mynd/lögreglan
Enn hefur ekkert spurst til Héðins Garðarssonar, 43 ára, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra í morgun. Lögreglan lýsti eftir Héðni í gærkvöldi.

Héðinn fór frá heim­ili sínu á Akureyri um klukkan 9 í gærmorg­un og hefur ekkert sést til hans síðan.

Vitað er að Héðinn fór á bif­reiðinni TH-979, sem er rauð Suzuki Grand Vitara, ár­gerð 2000. Og er bifreiðin er með svartar felgur.

Talið er að hann sé klæddur í gráar vinnubuxur, hvítan suttermabol og í svartri renndri hettupeysu.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Héðins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna, t.d. í gegnum einkaskilaboð á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra eða í síma 444-2805.

Sjái fólk bifreiðina, kyrrstæða eða á ferð, skal hringja strax í 112,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×