Fótbolti

England hirti bronsið eftir framlenginu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Fara Williams fagnar marki sínu.
Fara Williams fagnar marki sínu. vísir/getty
England tryggði sér þriðja sætið á HM kvenna sem fram fer í Kanada með 1-0 sigri Þýskalandi í leiknum um þriðja sætið. Úrslitin réðust í framlengingu.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik og ekkert í þeim síðari og því þurfti að grípa til framlengingar í hitanum í Kanada.

Fyrsta og eina mark leiksins kom á 108. mínútu, en þá skoraði Fara Williams af vítapunktinum eftir að Tabea Kemme hafði brotið á Lianne Sanderson.

Ekki urðu mörkin fleiri og England hirti því bronsið eftir hrikalegt tap í undanúrslitunum gegn Japan þar sem Laura Bassett gerði ótrúlegt sjálfsmark.

Japan og Bandaríkin mætast svo í úrslitaleiknum annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×