Fótbolti

Enginn Kolbeinn - engin stig hjá Ajax | Níu stigum á eftir PSV

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kolbeinn er frá vegna meiðsla.
Kolbeinn er frá vegna meiðsla. vísir/getty
Ajax tapaði óvænt fyrir Vitesse Arnheim í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Uro Đurđević skoraði eina mark leiksins á 85. mínútu.

Tapið kemur á versta tíma fyrir Ajax en liðið er nú níu stigum á eftir toppliði PSV Eindhoven. Möguleikar Ajax á að vinna sinn 33. meistaratitil og þann fimmta í röð eru því hverfandi.

Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leikmannahópi Ajax vegna meiðsla. Íslenski landsliðsframherjinn hefur skorað fimm mörk í 15 deildarleikjum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×