Enski boltinn

Emre Can ekki með landsliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emre Can eftir að hann meiddist.
Emre Can eftir að hann meiddist. Vísir/Getty
Emre Can, leikmaður þýska landsliðsins og Liverpool, verður ekki með Þýskalandi í leikjum liðsins gegn Finnlandi og Noregi á næstu dögum.

Can meiddist í leik Liverpool gegn Burton Albion í enska deildabikarnum í síðustu viku.

Þýska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Can muni missa af landsleikjunum og óvíst er hvort að hann nái næstu leikjum Liverpool vegna meiðslanna.

Can meiddist á ökkla í leiknum gegn Burton en það var fyrsti leikur hans í byrjunarliði Liverpool á tímabilinu. Hann hafði komið inn á sem varamaður í 4-3 sigrinum á Arsenal í fyrstu umferð tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool mætir næst Englandsmeisturum Leicester þann 10. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×