Fótbolti

Emil sat allan tímann á bekknum | Fjórtándi sigur Juventus í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Paulo Dybala gulltryggði sigur Juventus á Frosinone.
Paulo Dybala gulltryggði sigur Juventus á Frosinone. vísir/epa
Fimm leikjum var að ljúka í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Emil Hallfreðsson kom ekkert við sögu þegar Udinese og AC Milan skildu jöfn, 1-1, á San Siro.

Pablo Armero kom Udinese yfir á 17. mínútu en M'Biang Niang jafnaði metin fyrir Milan í byrjun seinni hálfleiks og þar við sat.

Udinese hefur ekki unnið leik síðan 6. janúar en liðið er í 14. sæti deildarinnar með 27 stig, átta stigum frá fallsæti.

Juventus vann sinn 14. leik í röð þegar liðið lagði Frosinone að velli, 0-2.

Mörkin létu bíða eftir sér en stíflan brast að lokum á 73. mínútu þegar Juan Cuadrado kom Juventus yfir. Argentínumaðurinn Paulo Dybala kláraði svo dæmið þegar hann skoraði annað mark ítölsku meistaranna í uppbótartíma.

Þrátt fyrir þessa ótrúlegu sigurgöngu er Juventus samt enn tveimur stigum á eftir toppliði Napoli sem vann 1-0 sigur á Carpi á heimavelli í dag.

Gonzalo Higuaín skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 69. mínútu. Argentínumaðurinn er langmarkahæsti leikmaður ítölsku deildarinnar með 24 mörk.

Þá vann Chievo 1-2 sigur á Torino og Sassoulo og Palermo skildu jöfn, 2-2.

Fyrr í dag gerðu Verona og Inter 3-3 jafntefli í miklum markaleik.

Úrslitin í dag:



Verona 3-3 Inter

0-1 Jeison Murillo (8.), 1-1 Filip Helander (13.), 2-1 Eros Pisano (16.), 3-1 Artur Ionita (57.), 3-2 Mauro Icardi (61.), 3-3 Ivan Perisic (78.).

AC Milan 1-1 Udinese

0-1 Pablo Armero (17.), 1-1 M'Baye Niang (48.).

Frosinone 0-2 Juventus

0-1 Juan Cuadrado (73.), 0-2 Paulo Dybala (90+1).

Napoli 1-0 Carpi

1-0 Gonzalo Higuaín (69.).

Rautt spjald: Raffaele Bianco, Carpi (56.).

Sassoulo 2-2 Palermo

0-1 Franco Vazquez (30.), 1-1 Gregoire Defrel (45+1), 2-1 Simone Missiroli (50.), 2-2 Uros Djurdjevic (53.).

Rautt spjald: Achraf Lazaar, Palermo (75.).

Torino 1-2 Chievo

1-0 Marco Benassi (19.), 1-1 Bruno Peres, sjálfsmark (34.), 1-2 Valter Birsa, víti (71.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×