Fótbolti

Emil Hallfreðsson á skotskónum í stórsigri | Myndband

Kristinn Páll Teitsso skrifar
Emil Hallfreðsson í leik með Verona á síðasta tímabili.
Emil Hallfreðsson í leik með Verona á síðasta tímabili. Vísir/Getty
Emil Hallfreðsson var á skotskónum í öruggum 6-0 sigri Hellas Verona á neðrideildarliðinu Südtirol í æfingarleik í dag.

Emil komst tvisvar á blað í leiknum en Hellas Verona er þessa dagana að undirbúa sig fyrir tímabilið í ítölsku úrvalsdeildinni.

Emil skoraði fyrra mark sitt í leiknum með snyrtilegri aukaspyrnu en seinna markið kom af stuttu færi eftir gott samspil liðsfélaga Emils.

Mörk Emils má sjá hér fyrir neðan en fyrra markið kemur eftir rúmlega 1.30 og seinna markið kemur eftir rúmlega 2.50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×